.............................
lukkurefurinn
30.7.07
Það er fleira en tjútt og tan sem fylgir Tenerife

- Hvað finnst þér um þessa? sagði ónefndur vinur minn og sýndi mér köflótta sundskýlu á Ralph Lauren heimasíðunni.
Ég: Æ, ég veit það ekki, er hún ekki svolítið nærbuxnaleg... Allt í lagi með hana samt.
Ónefndur vinur minn: Það er ekki nógu gott. Hún þarf að vera töff. Töffaðasta sundskýla í heimi.
Ég: Iss, það skiptir engu máli hvernig sundskýlu þú verður í. Það verða allir of fullir til að taka eftir því.
Ónefndur vinur minn: Nei! Á daginn, þá eru allir í sólbaði og það eina sem þeir eru að gera er að skoða hvernig sundfötum hinir eru í!
Ég: Marri.. þeir eru að skoða hvað er undir sundfötunum.

Jæja, þar fór það með ónefnda vininn. En Marra er ábyggilega alveg sama, hann á eftir að vera í svo töff sundskýlu.

En þetta var sumsé dæmi um krísu sem fólk stendur í fyrir útskriftarferðina sem er eftir viku.

Eitt áhyggjuefna kvenþjóðarinnar eru hinar ýmsu háreyðingarmeðferðir en í þeim geira er boðið upp á úrval af ógeðslegheitum. Ein vinkona mín er hörkutól og keypti sér forláta háreyðingarvél. Það er ógurlegt tæki sem orgar eins og loftbor og meðan það orgar þá rykkir það líkamshárum upp með rótum. Um daginn sinn brúkaði hún þetta tæki að mér viðstaddri. Það var skelfileg lífsreynsla og í minningunni blandast saman orgið í apparatinu, blóð, spritt og hvítir hársekkir.

Þetta er ekkert grín en toppaði þó ekki frásögn sem lesa má hér.

ritað af ~elísabetu~ klukkan 10:41. |


16.7.07
Mömmó

Ég er í mömmó. Alvöru mömmó með alvöru börnum. En þar sem ég er allan daginn í vinnunni ganga börnin sjálfala að mestu. Ég þó skrapp heim í hádeginu til að kanna ástandið. Þá voru Tommi og Tumi voru berir að ofan og í sundskýlum í eltingaleik um húsið en Jón Guðni, sá minnsti, var ber að neðan og í bol og var eitthvað að skrækja inni í borðstofu. Frá vasknum í eldhúsinu lá garðslanga sem lá út á pall og þaðan niður í garð þar sem þeir voru að búa til sundlaug. Það voru litlir pollar hér og þar um húsið en síðan myndaðist einn stór pollur í eldhúsinu þegar garðslangan losnaði af krananum og heitt vatn sprautaðist út um allt. Á eldavélarhellunni var stór pottur með einhvers lags gumsi sem litla systir mín hafði eldað handa peyjunum í hádegismat.

Vettvangskönnun leiddi því í ljós að allir væru á lífi og í góðu stuði svo ég fór bara aftur í vinnuna.

ritað af ~elísabetu~ klukkan 15:09. |


13.7.07
Föstudagurinn þrettándi

Tumi á afmæli í dag, föstudaginn 13. júlí. Hinir bræðurnir tveir vöknuðu eldsnemma til að fá að sjá hvað hann fengi í afmælisgjöf en Tumi var afslappaðari yfir þessu og var ekki enn vaknaður þegar ég fór í vinnuna.

Í hádeginu var hann þó vaknaður og var heillengi að skreyta afmæliskökuna sína. Hún skyldi vera fullkomlega samhverf og krafðist það mikilla pælinga og leiðréttinga. Hann pældi svo mikið að hann gleymdi að borða. Ekki að það teljist fréttnæmt í hans tilviki.

Í nótt ætla ég að ganga Fimmvörðuhálsinn ásamt góðu fólki. Fátt er betra en að vaka í heilan sólarhring og enda hann á níu tíma fjallgöngu með þverhnípi til beggja handa. Eftir að hafa heyrt ógurlegar lofthræðslusögur frá mömmu minni og vinnufélaga er ég ekki frá því að ég sé orðin töluvert lofthrædd. Ég er þess vegna búin að panta að fá að leiða Einar á einstigskaflanum af því að hann segist vera þyngstur í hópnum og getur þar að auki lyft mun meiru en minni eigin þyngd svo ef ég vafra út af brúninni þá ætti hann að geta kippt mér upp. Aftur á móti ef hann vafrar út af brúninni þá verður hann bara að redda sér sjálfur.

Við Sigrún, sem einnig ætlar með, fórum því í búð í gær til nestiskaupa. Við ráfuðum svolítið um Hagkaup og enduðum með körfu fulla af einhverri vitleysu, sterasúkkulaði, kleinuhringjum, myntulaufum, bönunum og sítrusávöxtum.

Mamma er búin að lána mér rauða nælon lambhúshettu. Ég ætla að trítla Kattarhryggina og Heljarkamb útlítandi eins og bófi. Rauður bófi með prik.

Þetta reddast allt saman. Jón frá Hlíðarendakoti og Ásgeir Guðríðarsonur skipulögðu ferðina og skelltu sér Fimmvörðuhálsinn um síðustu helgi til að æfa sig. Þeir ætla að vera bestir í Fimmvörðuhálsinum.

Guðríður Ásgeirsmóðir er búin að redda mér Nósabauk. Ég er strax farin að spara.

ritað af ~elísabetu~ klukkan 14:24. |