| ............................. |
|
lukkurefurinn
|
|
:: um lukkurefinn :: Nafn: Elísabet Hugrún Aldur: 20 Msn: elisabethugrun(at)hotmail.com :: yrðlingar :: Aldís Bjarni Dóra Björt Hafsteinn Halla Hildur Arna Hildur kona Hildur Kristín Saga Sigrún Hlín Bekkjarsíðan :: eldra :: júlí 2004 ágúst 2004 september 2004 október 2004 nóvember 2004 desember 2004 febrúar 2005 mars 2005 apríl 2005 maí 2005 júní 2005 júlí 2005 ágúst 2005 september 2005 október 2005 nóvember 2005 desember 2005 janúar 2006 febrúar 2006 mars 2006 apríl 2006 maí 2006 júní 2006 júlí 2006 ágúst 2006 september 2006 október 2006 nóvember 2006 desember 2006 janúar 2007 febrúar 2007 mars 2007 apríl 2007 maí 2007 júní 2007 júlí 2007 janúar 2008 :: heimsóknir :: Heimsóknir síðan 24. júlí 2006 |
|
Ekkert Ég sit með rykugan vorakur í eyranu. Það er ósköp notalegt. Við hjálpumst að við að láta tímann líða og erum eins rómó saman og aðstæður bjóða upp á. Ég pikka í rólegheitum inn á tölvuna og leiðbeina villuráfandi sálum sem hringja hingað á meðan Dusty Springfield gólar úr sér hjartað í eyra mitt því hún er svo ástfangin og særð. Hún er ágæt greyið, þar til hún uppgötvar níunda áratuginn og fær diskóundirspil í stað tilkomumikillar hljómsveitar. Um helgina var ekki hlustað á Stál og hníf í flutningi ölvaðra unglinga með kassagítarsundirspili heldur Baggalút gaula Hawaiilög og Doktor Herra og Herra Fríðan. Þeir síðarnefndu eru miklir fylgismenn sykraðra gosdrykkja eins og heyra má af textum þeirra sem snúast allir um kók. Ættu því þeir félagar að drífa í því að tala við The Coca-Cola Company og fá það til að sponsora sig í framtíðinni. Ég viðraði þessa hugmynd við hann Björn Pálma. Hann sagði: Elísabet. Það er sko ekki verið að meina þannig kók. Hann er meiri kjáninn hann Bibbi. Viti bornir menn skulu skrifa undir hér. ritað af ~elísabetu~ klukkan 12:53. |
Minningargrein um Harald Lundberg Haraldur Lundberg var afskaplega leiðinlegur maður. Af þeim sökum var hann ofsalega einmana en það viðurkenndi hann aldrei fyrir sjálfum sér. Í hvert sinn sem manneskja kom í fornbókabúðina hans kviknaði vonarneisti í brjósti hans um að ná einhverjum tengslum en þann neista náði hann að kæfa af sjálfsdáðum með eigin þurrpumpuskap og leiðindum. Aldrei tókst Haraldi Lundberg heldur að kveikja ástarbál í hjarta nokkurrar konu. Kannski var það sökum þess hversu eldhræddur Haraldur var. Hann kynti aldrei húsið sitt, kveikti aldrei upp í arninum og hafði að minnsta kosti tvö slökkvitæki í hverju herbergi. Í kvöldmat át hann yfirleitt kalda súpu með gúrkum og káli. Þess vegna var Haraldur Lundberg alltaf svangur og mjög horaður. Olnbogarnir hans mynduðu hvöss horn og hné hans voru beinaber. Hann þjáðist einnig af hand- og fótkulda. Það mótaði fyrir bláum æðum á líkama hans og í verstu kuldaköstunum ímyndaði Haraldur sér að þær innihéldu ís. Ísvatn eins og rann í Almannagjá og út í Þingvallavatn. Vatnið sem bandarískir hermenn höfðu talið að gæti ekki frosið og sett það því á bílana sína sem rúðupiss. Þeir komust þó að hinu rétta innan skamms tíma. En Lundberg hafði hingað til ekki frosið fyrir utan fyrstu kjúkuna af litla fingri sem kól af fyrir mörgum árum. Síðan hafði Haraldur Lundberg alltaf sofið með vettlinga og prjónahúfu. Lundberg rak fornbókabúð sem hét Fornbókaverslun Haraldar Lundberg, þar sem hann seldi gömul ættfræðirit og tímarit. Hjá Haraldi Lundberg voru til nokkrir kassar af Eimreiðinni og Úrvali. Hann átti einnig nokkra gula Þjóðvilja sem lágu úti í glugga og söfnuðu ryki. Haraldi fannst rykið ágætt, það var samlitt hárinu hans og fötunum. Hann og rykið voru vinir og þegar ekkert var um að vera í bókabúðinni skemmti Haraldur sér við að blása rykinu út í loftið með hvítu sogröri með grænum röndum. Stundum náði hann að blása stafi og orð í rykið. Þá varð hann kátur og það brakaði í honum eins og í ryðguðum hjörum. Íhjíhjí, brakaði í Haraldi og hann juðaði sér á stólnum við skrifborðið. Haraldur átti sér aðra eftirlætisiðju. Það var að þræða fiskiflugur á nál. En nálin dugði ekki til svo á hana hafði Haraldur fest tvinna og nú átti hann heilu lengjurnar af fiskiflugum. Fiskiflugulengjurnar hengdi hann á bókahillurnar og með góðum vilja mætti segja að þær minntu á músastiga. Á elstu lengjunum voru flugurnar uppþornaðar og minntu helst á litlar rúsínur. Þær mátti helst ekki koma við því þá leystust þær upp í mylsnu og samlöguðust rykinu. En það kom sjaldan nokkur í búðina svo Haraldur hafði ekki miklar áhyggjur af því. Og eins og áður sagði, fannst honum rykið ágætt. Haraldur átti ekki bíl en það skipti svosem ekki miklu máli. Hann komst allra sinna ferða gangandi. Þær voru heldur ekki svo margar. Haraldur fór helst út í Vísi þar sem hann gat keypt kál og gúrkur og stundum rúgbrauð til hátíðabrigða. Rúgbrauð og mikið af smjöri. Áður fyrr höfðu systkini hans alltaf boðið honum í afmæli barna sinna. Þá hafði Haraldur rölt niður á Hlemm og tekið strætó. Hann sat alltaf fremst fyrir aftan bílstjórann með greiparnar spenntar í kjöltunni. Ef ferðin var löng tók hann í nefið og snýtti sér svo í stóran tóbaksklút sem hann geymdi í buxnavasanum. Einu sinni hafði hann gleymt klútnum. Tóbakstaumurinn tók að leka niður á efri vörina á honum. Þá snýtti hann sér að hætti bænda. Tók fyrir aðra nösina og blés af krafti út um hina. Tóbakshorið flaug úr nösinni og hafnaði á ganginum milli sætaraðanna. Kona sem sat hinum megin við ganginn varð vitni að þessu og stóð ekki á sama. ?Fyrirgefðu, hvað heldurðu að þú sért að gera, sagði hún en Haraldur lét sem hann sæi hana ekki og tók til við að snýta sér úr hinni nösinni. Hann miðaði vandlega og horið hafnaði á kápufaldi konunnar. Haraldur gaf afmælisbörnunum alltaf grænan hundraðkrónuseðil jafnvel þótt að löngu væri búið að skipta honum út fyrir klink. Hann var leiðinlegur afmælisgestur og fólk var hætt að bjóða honum í afmælin. Haraldi var alveg sama. Honum fannst börn asnaleg. Eitt sinn höfðu börn bankað upp á hjá honum og beðið um dót á tombólu til styrktar fátækum börnum í Afríku. Haraldi var alveg sama um fátæk börn í Afríku. Þau voru of mörg og með vírhár. Það var eins og þau væru með skapahár á hausnum fannst Haraldi. Þau mættu éta það sem úti fraus og ekki var það honum að kenna ef ekkert fraus þar. Þetta sagði hann tombólubörnunum æstur. Svo henti hann bréfahníf á eftir þeim. Börnin öskruðu og hlupu á dyr. Daginn eftir mökuðu þau drullu á gluggana hjá honum. Þá varð Haraldur reiður. Hann náði í kústinn sem hafði verið hugsaður til að sópa gólf verslunarinnar en hafði ekki verið notaður árum saman. Kústinn bleytti hann í baðherbergisvaskinum og notaði hann svo til að skrúbba drulluna af gluggunum. Eftir þetta setti hann upp skilti í búðargluggann: Börn bönnuð. Af kvikindisskap rölti hann svo út í Vísi og keypti 36 sleikipinna sem hann raðaði á gluggakistuna. Haraldur svar í herbergi fyrir innan bókabúðina. Eina kalda vetrarnótt vaknaði hann við vesælt mjálm fyrir utan útidyrnar. Haraldur dró húfuna betur fyrir eyrun en náði ekki að útiloka hljóðið. Hann tróð sér í flókainniskóna og gekk fram í búð og gægðist út. Þetta var lítill hvít- og svartflekkóttur köttur. Hann var horaður og líklega svangur. Haraldur tók hann í fangið og ætlaði að skutla honum eins langt í burtu og hann hefði krafta til. En hann fann þá hve kötturinn var heitur. Hann var heitur og mjúkur og illa lyktandi. Haraldur gerði þá svolítið sem hann hafði aldrei trúað upp á sjálfan sig. Hann tók köttinn inn og gaf honum skál og gúrkusúpu. Kötturinn lapti allt það sem var í skálinni og horfði á Harald vongóðum augum. En Haraldur tímdi ekki meiru í köttinn. Hann fór upp í skáp og náði í koddaver. Ofan í koddaverið stakk hann kettinum og batt fyrir. Kötturinn barðist um, hvæsti og gaf frá sér önnur ógurleg hljóð. Haraldur lét það ekki á sig fá og gekk með köttinn upp í rúm. Hann lyfti sænginni upp og lagði koddaverið með kettinum til fóta. Svo prílaði hann sjálfur upp í. Kötturinn hætti fljótlega að berjast um en var þó vel heitur. Rúmið hitnaði á svipstundu og Haraldur náði að hlýja sér vel áður en hann sofnaði hamingjusamur. Morguninn eftir vaknaði Haraldur með sælubros á vör. Eftir að hafa drukkið morgunkaffið, þunnt sull með þremur skeiðum af sykri í, kannaði hann ástandið á kettinum. Haraldur var ekki viss um hvort hann vildi köttinn á lífi. Ef hann væri steindauður gæti hann stungið honum í öskutunnuna og verið laus við hann úr lífi sínu, sem væri auðvitað kostur. Haraldur tók við að leysa hnútinn á koddaverinu og gægðist svo inn um opið. Þar mættu honum gular glyrnur kattarins. Hann hafði þá lifað þetta af. Haraldur stóð upp og sturtaði kettinum niður á gólf. Kötturinn lenti á fjórum fótum, hvæsti og setti upp kryppu. - Mikið óskaplega er þetta ljótt kvikindi, hugsaði Haraldur með sér en gaf kettinum þó örlítið sykurblandað kaffi í skál með slettu af G-mjólk sem hafði staðið á borðinu frá því deginum áður. Þetta hvarf ofan í köttinn á svipstundu. Þá vissi Haraldur ekki hvað hann ætti að gera við köttinn svo hann henti honum út. Haraldur átti gamla ritvél og hafði hann mikla ánægju af að skrifa kvörtunar- og nöldurbréf til ráðandi manna í ríkisstjórninni. Einkar skemmtilegt þótti honum að nöldra í einum bekkjarfélaga sínum úr menntaskóla sem var á þeim tíma orðinn virðulegur ráðherra. Hann sendi einnig forsætisráðherranum og forsetanum mörg bréf þar sem hann sakaði ráðherrann umtalaða um truntuskap og stuld. Stuld á trúnaðarupplýsingum og framapoti á kostnað annarra. Ráðherrann hafði borið sigur af Haraldi í kosningum um bekkjarráðsmann síðasta ár þeirra í menntaskóla og hafði Haraldur aldrei jafnað sig eftir það. Ráðherrann hafði þó ekki alveg hreinan skjöld. Hann hafði nefnilega fengið að skipuleggja alla endurfundi fyrrverandi bekkjarfélaganna eftir útskrift en hefndi sín á Haraldi með því að hringja bjóða honum aldrei með. Haraldur hafði ekki komist að því fyrr en tólf árum eftir menntaskólann og hafði hann þá misst af fjölmörgum viðburðum. Þrátt fyrir að hafa engan áhuga á félagslífi og þykja fyrrverandi bekkjarfélagar sínir langt fyrir neðan sína virðingu varð Haraldur bálreiður við þessa uppgötvun sína. Hann mundi ekki meira eftir því kvöldi en þegar ráðherrann vaknaði morguninn eftir var búið að krota ,,saurugi þrjótur og svikari, þú ert skömm á samfélaginu? á framhlið húss ráðherrans og limgerðið brunnið til ösku. Má því telja að þar hafi Haraldur verið að verki en þó var þetta undarlega stórtæk aðgerð frá þeim heimakæra manni og letihaug. ritað af ~elísabetu~ klukkan 16:48. |
Lukkurefurinn lítur í blöðin Á morgnanna finnst mér best að hlusta á Rás 1. Það er góð stöð með vönduðu efni og þar er lítið um þætti þar sem einn þáttastjórnandi jammar og jáar við sjálfan sig á milli þess sem hann skyrpir út úr sér aulabröndurum og dælir yfir hlustendur lögum af stöðluðum vinsældalistum. Dagskráin á Rás 1 fyrir kl. 8 á morgnanna er í föstum skorðum og því er hægt að miða morgunstörfin við hana. Sem dæmi má nefna að þegar morgunbænin byrjar á Rás 1 þá er nauðsynlegt að hafa hafist handa við að tína á sig spjarirnar því annars er hætta á að koma of seint í skólann. Önnur stöð á vegum ríkisins, Rás 2, er oft ágæt en hefur ferlegan morgunþátt. Þar er maður sem röflar um leiðinlega hluti í löngu máli, segir frá því sem stendur í blöðunum og eyðileggur þannig fyrir manni morgunlesturinn. Svo rembist hann við að vera með útvarpsrödd sem er einkar tilgerðarleg og undir talinu leikur hann alltaf sömu lyftutónlistina. Þegar klukkan fer að ganga níu þá batnar þó dagskrá Rásar 2 til muna og er oft alveg ágæt. Á Útvarpi Sögu er einnig þáttur þar sem tvær konur rabba um fréttirnar í Mogganum og er hann þó mun skárri en morgunþátturinn hjá Rás 2. Þær koma líka frekar auga á skemmtilegar fréttir. Morgnarnir hjá mér fara oft í að lesa blöðin. Ég gæti því verið með greinargóðan hádegisþátt um efni blaðanna fyrir blinda sem geta ekki lesið þau. Mundi ég kalla þáttinn Blindrasprell og væri hann ægilega skemmtilegur og fræðandi. Í dag gæti ég til dæmis haft eftir Sigurði Inga Friðleifssyni, framkvæmdastjóra Orkusetursins, sem einmitt var viðtal við í Blaðinu (bls 10). Viðtalið fjallaði um verðmæti jarðvarma og var þar verið að róma Bláa lónið og heita vatnið. Það er svo sem allt gott og blessað en það sem mér fannst áhugavert í þessu viðtali voru staðreyndir um útblástur koltvísýrings. Þar kom fram að árlegur útblástur frá vegasamgöngum er 700.000 tonn af koltvísýringi. Sumsé, allir bílar á Íslandi blása þessum 700.000 tonnum út í loftið samanlagt á ári og þykir það nokkuð magn. Því þykir mér merkilegt að ekki skuli meira verið gert úr því að álverið í Reyðarfirði muni losa 500.000 tonn af sama efni út í umhverfið á ári. Pant ekki búa í Reyðarfirði. Á sömu blaðsíðu var annað skemmtilegt. Í bænum Lyme Regis á Englandi er helsta íþrótt íbúanna hið fjöruga ,,conger cuddling" það er að lemja hver annan með dauðum álum, ,,enda er fátt annað skemmtilegra hægt að gera við dauðan fisk" að þeirra sögn. Árlega koma bæjarbúar saman, skipta sér í tvö lið og keppast svo við að lemja mótherjana með dauðum álum og hafa allir gaman af. Mikið hefði ég viljað fara á þessa hátíð. Það er þó ekki möguleiki lengur því í ár var hátíðin aflögð vegna mótmæla ýmissa náttúruverndarsamtaka í Bretlandi. Þykir mér náttúrusamtök þessi hafa rangar áherslur. Margt er verra fyrir náttúruna en þorpsbúar í krummaskuði sem lemja hver annan með álum. Til dæmis álver, eða nagladekk, eða kjarnorkuendurvinnslustöðvar. Mér finnst að ríkisstjórnin ætti að bjóða íbúum Lyme Regis að búa á Reyðarfirði. Þar er mönnum nefnilega sama um náttúruna og mundu ábyggilega taka hressir þátt í álaslagnum. Þar mætti hann jafnvel vera vikulega því ég efast um að það sé hörð samkeppni um álakvóta á Íslandi. Reyðfirðingar gætu hætt við álverið og farið að veiða ála í staðinn og Lyme Regisbúar gætu keypt þá jafnóðum og lamið sjálfa sig og aðra með þeim. Þar væri stanslaust partý. Í Morgunblaðinu stóð það helst upp úr viðtal við sagnfræðing á Akureyri. Hann vitnaði í Morgunblað frá 1925 þar sem sagt var að í náinni framtíð færu Íslendingar jafnvel að þvo sér í hverri viku. Jafnvel... ritað af ~elísabetu~ klukkan 12:40. |
|