.............................
lukkurefurinn
24.4.06
Spánn

Um páskana fór ég til Spánar með sólarhrings stoppi í Lundunum. Á Spáni gerðist ýmislegt. Þar var heitt og gott og sumar og sítrónur, gulir sportbílar, teknó og sandur. Fjallaþorp, myrkar næturgöngur á föstudaginn langa og sígaunar í hellum.

Dag nokkurn vorum við að keyra á hraðbraut. Á hraðbrautum á Spáni má keyra hratt og ekki er gert ráð fyrir að menn stoppi. En Jóni Guðna, litla bróður mínum, þriggja ára, var ekki kunnugt um þá reglu. Hann hafði verið sofandi í aftursætinu en skyndilega vaknar hann og hrópar að hann verði að komast á klósettið strax. Honum var sagt að bíða en hann orgar og æpir svo við neyðumst til að stoppa á hraðbrautinni. Jón Guðni hoppar út á vegkant og er sagt að vera ofsalega fljótur að pissa. En drengurinn girðir niður um sig og fer að kúka á hraðbrautarkantinum. Það skapaði mikið stress hjá öðrum farþegum og aðrir bílar þustu framhjá.

Æ, það er víst ekki tími nema fyrir þessa einu kúkasögu.

ritað af ~elísabetu~ klukkan 11:59. |