.............................
lukkurefurinn
23.10.05
Airwaves og Tjarnarhringur

Á morgun á ég að hlaupa Tjarnarhringinn. Þess vegna er ég með óþarflega stóran hnút í maganum. Því ég hata Tjarnarhringshlaup með tímatöku.

Í gærkvöldi/nótt ruglaði ég saman dögum og fannst eins og það væri mánudagur í dag. Og ég þyrfti að fara að hlaupa Tjarnarhringinn í dag og hafði samviskubit yfir að vera á Airwaves fram á nótt því leikfimi er í fyrsta tíma. Svona getur maður ruglast eftir 4 daga djamm og svefnleysi.

Ég á bara að hlaupa hann á morgun. Oj.

Airwaves hátíðin var ótrúlega skemmtileg. En með of löngum röðum. Samtals raðatími hjá mér alla hátíðina voru 195 mínútur eða 3 klst og 15 mínútur. En í gærkvöldi aðeins tókst ófáum að toppa þann tíma.

Ég er með stærðarinnar brunaáverka eftir handklæði á fætinum.

ritað af ~elísabetu~ klukkan 15:45. |