| ............................. |
|
lukkurefurinn
|
|
:: um lukkurefinn :: Nafn: Elísabet Hugrún Aldur: 20 Msn: elisabethugrun(at)hotmail.com :: yrðlingar :: Aldís Bjarni Dóra Björt Hafsteinn Halla Hildur Arna Hildur kona Hildur Kristín Saga Sigrún Hlín Bekkjarsíðan :: eldra :: júlí 2004 ágúst 2004 september 2004 október 2004 nóvember 2004 desember 2004 febrúar 2005 mars 2005 apríl 2005 maí 2005 júní 2005 júlí 2005 ágúst 2005 september 2005 október 2005 nóvember 2005 desember 2005 janúar 2006 febrúar 2006 mars 2006 apríl 2006 maí 2006 júní 2006 júlí 2006 ágúst 2006 september 2006 október 2006 nóvember 2006 desember 2006 janúar 2007 febrúar 2007 mars 2007 apríl 2007 maí 2007 júní 2007 júlí 2007 janúar 2008 :: heimsóknir :: Heimsóknir síðan 24. júlí 2006 |
|
Geitungasaga Ég ætla að segja söguna af því þegar geitungur stal morgunverðinum mínum, skítti út pallinn og varð til þess að jógúrt helltist yfir skóna mína. Þannig var það að eftir að hafa loksins farið fram úr rúminu uppgötvaði ég hversu dásamlegt veður væri úti. Vakti það með mér mjög svo blendnar tilfinningar þar sem ég á eftir að sitja inni til fimm í dag. En eftir að hafa veitt kónguló í vatnsglas, sem ég síðar stóð mig að að drekka úr, fór ég upp í eldhús, skrældi gulrót, náði í jógúrt og vatnsglas og gekk út á pall. Sleit ég mér leið í gegnum ótal kóngulóarvefi og kom ég mér fyrir á tröppunum í sólskininu. Þá heyrði ég suð sem ég minnist ekki að hafa heyrt síðan í fyrra og fylgdi því risavaxinn geitungur. Brá mér mjög og reyndi að slá hann í burtu. En geitungurinn gafst ekki upp og sótti fast að augunum á mér og andliti. Þess má geta að á þessari stundu var ég með vatnsglas og opna jógúrtdollu í höndunum. Sló ég hann aftur. Og splass. Ég missti takið á jógúrtinu, horfði á það skellast í gólfið. Það má líkja þessu við sprengingu. Jógúrtið slettist upp um alla veggi, tröppurnar og skóna mína. Það var alstaðar. Ég rétti dolluna við, það var enn örlítið eftir af jógúrti í henni, kannski svona þriðjungur, og fór inn í eldhús til að ná í pappír. Skildi ég eftir mig hvít spor á pallinum. Þegar ég kom til baka var partí á tröppunum. Feiti, óprúttni geitungurinn hafði sótt vini sína og skemmtu þeir sér í jógúrtklessunum. Bzzz... bzzz... Ég sparkaði þeim í burtu og kláraði það sem eftir var af morgunmatnum, sitjandi í sólinni. Þá er sagan af því þegar geitungur stal morgunverðinum mínum, skítti út pallinn og varð til þess að jógúrt helltist yfir skóna mína búin. En þessi atburður varð til þess að ég gleymdi að vökvar bonsai trén hans Magga. Það er geitungnum að kenna ef þau deyja, helvítis geitungunum. ritað af ~elísabetu~ klukkan 10:01. |
Skammarstrik Björn Pálmi gerir ýmislegt fyrir kærustuna sína. Hann er svo ógurlega sniðugur. Í nótt toppaði hann þó sjálfan sig. Lá ég í sakleysi mínu og átti mér einskis ills von þegar drengurinn kemur inn í herbergið með vatnsglas í hönd. Prakkaralegur svipur breiddist yfir andlitið. Það vissi ekki á gott. Sekúntubroti síðar tók hann viðbragð og hellti yfir mig ísköldu vatninu. Ég æpti og spratt á fætur en asninn var í keng af hlátri. Ó, já, þetta fannst honum fyndið. -Ertu eitthvað fúl? Nei, hvernig datt honum það í hug. Ljótinn. Ég viðurkenni það að ég hef gefið honum ófáar blóðnasirnar en þær jafnast ekkert á við þetta. Ég get samt eiginlega ekki verið reið við þetta kjánaprik. En má eiga von á að þessu verði hefnt. Við Hildur Kristín vorum iðnar við prakkarastrikin á árum áður. En eftir að aldurinn færðist yfir mann þykir fólki ekki lengur við hæfi að við laumum þorskaugum í kartöflumúsina hans afa, sprautum með garðslöngu á gelgjur í sólbaði eða stundum klossahopp á trépöllum fyrir sólarupprás. Kannski er kominn tími til að hefja nýtt tímabil prallarastrika. Eða kannski ekki. Hvur veit. Veikindi hrjáðu mig um helgina. Þau komu þó ekki í veg fyrir að ég flýgi til Ísafjarðar ókristilega snemma á laugardagsmorguninn og til baka aftur á sunnudeginum. Á milli flugferðanna fór ég í veislu, slappaði af í sumarkjól og naut veðurblíðunnar á Vestfjörðum. ritað af ~elísabetu~ klukkan 12:56. |
Púkadans Heróínlúkkið er kúl. Hentar vel til vinnu í fjármálafyrirtæki. Skítugt hár, baugar niður á kinnar, fölt andlit og glansandi augu. Vera berfætt í skónum. Það fannst mér. En svo fór ég að sjá í móðu, varð kaldsveitt og þungt um andardrátt. Eftir að hafa horft ofan í klósettið um stund fannst mér tímabært að fara heim. Og ég fór heim. Heima fann ég ró í að hnoða í deig. Lék sjúkling í rúminu meðan deigið lyfti sér. Bauð Hildi Kristínu, sem líka er veik, í partý. Við grilluðum pizzur úti á palli, átum ís og vældum yfir slæmum örlögum. Hún hás og ég bogin og haldandi um magann. Báðar fölar með bauga í sólinni. Svo fór Hildur heim. Ég sit inni á vinnustofu og læt Emiliönu Torrini syngja fyrir mig. Hún syngur eins og engill. Tvær tilfinningar togast á í mér. Önnur segir mér að fara að sofa. Hin segir mér að fara út að hlaupa og stökkva. Ég geri hvorugt og hangi í hálfgerðu móki. Ég ætti að vera að gera mig fína fyrir veislu. En veikir fara ekki í veislur. Þó þá langi. Ég ætti að vera að pakka. Því ég er fer í veislu. Á morgun. Langt í burtu. Þarf að mæta út á flugvöll klukkan 7:15 í fyrramálið. Ég á litla púkavini sem segja að sveitt djamm sé besta meðalið við þreytu og veikindum. Kannski ég fari að dansa með púkunum. Æli svolítið á axlirnar á þeim. Emiliana er hætt að syngja. Elvis Presley var næstur í stafrófinu og er farinn að tjútta um vinnustofuna. Ég ætla að leyfa honum að tjútta í friði. ritað af ~elísabetu~ klukkan 19:02. |
Köfnun Veðrið ætlar víst ekki að vera jafn stillt í dag og ég hélt. Ég finn hvernig hitinn í skrifstofubyggingunni stígur, þungt loftið þröngvar sér leið inn eyrun og nefið og stíflar taugaboð heilans. Ég get ekki innbyrt meira en örfáar línur af Hálfbróðurnum í einu, þá leysast orðin upp og verða að óskiljanlegu mynstri. Hundrað og tólf mínútur eftir af vinnudeginum. Það er kominn tími á biturt blogg. Ég sé bláan himininn speglast í glerhurðinni fyrir framan mig. Eftir hundrað og tíu mínútur fer ég út um dyrnar, trítla niður glansandi stigann, yfir bílaplanið og inn í heitan bílinn. Þá ek ég leiðina heim, bíð í tuttugu mínútur í umferðinni við hringtorgið og horfi á einstaklingana í bílunum í kring tromma á stýrið, bora í nefið eða gera eitthvað sem þeir halda að enginn sjái. Ég kem heim, horfi aðeins upp í himininn áður en ég fer inn í húsið, fleygi mér upp í rúm og horfi á rykagnir dansa í sólargeislunum sem ná inn á milli rimlanna í gardínunum. Fæ samviskubit yfir því að vera ekki úti eins og mig er búið að langa í allan dag. Nei, Hildur. Mig langar ekki í Smáralindina. Níutíu og sex mínútur. Ég er að hugsa um að kaupa pylsubrauð á leiðinni heim. En ég nenni því ekki. Mig langar heldur ekkert í pylsur. Svo get ég líka alltaf notað venjulegt brauð. Það virkar samt svo illa, brauðsneiðin dettur í sundur og sinnepið lekur á pilsið sem fær þá fleiri bletti en það hefur núna. Ef ég halla hausnum á hlið þá leka tár úr auganu sem er neðar. Ef ég hristi hausinn í leiðinni heyrist hristuhljóð í eyrnalokkunum mínum. Það heyrist hærra í vinstri eyrnalokknum. Áttatíu og níu mínútur. Nú er kominn tími til að hella upp á kaffi og raða kexi á bakka. Ég vildi að ég borðaði kex. ritað af ~elísabetu~ klukkan 15:02. |
Losti Þetta voru Trabantmenn, veltandi um af losta... að venju. Sagði útvarpsmaður nokkur daufri röddu eftir að hafa spilað lagið Nasty boy fyrir landann. Núna get ég hlustað á lostafullan velting Trabantmanna þegar mér sýnist því í gær fór ég í plötubúð og keypti mér diskinn. Ég keypti mér líka Fiskimanns konuna til að hita upp fyrir Emiliönu tónleikana sem ég ætla á í kvöld. Í Bónus keypti ég mat og þá var peningurinn sem ég fékk fyrir að hanga inni í góða veðrinu í gær búinn. Bónus bauð ekki upp á croissant og seldi ónýt salöt. Frekar hefði ég viljað fá að vera úti en að fá þennan varning. Reyndar seldi Krónan ekki croissant heldur. -Afsakið. Seljið þið nokkuð frosin croissant? -Uhh.. ha? -Svona frosin, frönsk smjördeigshorn. -Haa? Nei... örugglega ekki. Veðrið er stillt í dag. Það er ágætt. ritað af ~elísabetu~ klukkan 11:07. |
Innipúki Björn Pálmi kom heim frá Danmörku með góða veðrið með sér. Sólin skín eftir margar rigningarvikur í röð. Þá er ofsalega skemmtilegt að vera í innivinnu til fimm á daginn með samtals þrjátíu mínútur í pásur og matartíma. Ég vil ekki fá hitabylgjur fyrr en ég fæ sumarfrí. Nema sérsniðnar hitabylgjur sem standa á milli 7 og 9 á morgnanna og eftir 5 á virkum dögum, og að sjálfsögðu um helgar. Það eru tillitssamar hitabylgjur. Kannski ætti ég að senda hann til Danmerkur á meðan ég er í vinnunni því þessar þrjár vikur sem hann var í burtu rigndi alltaf. Starfsmaður 1: Vá.. það er sextán stiga hiti úti. Starfsmaður 2: Það er ekki kaldara hérna inni. Rétt hjá þeim báðum. Hérna inni er óbærilega heitt, sennilega tvöfalt heitara en úti. Flestir eru í sumarfríi svo það er lítið að gera hjá mér. Í gærkvöldi var haldin kveðjuveisla til heiðurs Sigrúnar Hlínar sem ætlar að yfirgefa fósturjörðina fyrir Ungverjaland. Þar ætlar hún að dvelja í ár, læra ungversku og listina að vera liðamótalaus eins og Drakúla. Bundið var fyrir augun á stúlkunni, hún dregin út í bíl og ekið með hana í ótal hringtorg. Það fannst Völu óskemmtilegur leikur þar sem hennar nýjasti aukahlutur er gifs á fæti sem barðist í bílinn í öllum þessum hlykkjum. Sigrún var leidd inn á veitingastað þar sem sjö vinkvendi tóku á móti henni. Eftir matinn var aftur bundið fyrir augun á Ungverjalandsfaranum og hópurinn hélt vestur í bæ til Aldísar í kökuboð. Þar var farið í skemmtilega leiki eins og bíló á brjóstunum á Hildi Ásgeirsdóttur. Gaman, gaman. En fleiri leggja land undir fót en hún Sigrún. Magnús Kári fór til Afríku í morgun. Það finnst honum við hæfi, atvinnuleysingjanum. Það er víst ódýrara uppihald í Afríku. En á meðan hann flakkar um á milli fíla og búskmanna er ég í miklu ábyrgðarhlutverki. Hann treysti mér nefnilega fyrir því að passa bonsai trén sín sem hann heldur mikið upp á. Þessi kríli búa núna í eldhúsglugganum hjá mér og þarfnast meiri umönnunar en mörg gæludýr, til dæmis hamstrar. Einu sinni átti ég pottablóm. Það dó. Þannig að Maggi sýnir mér mikið traust með þessu. Við sjáum til hvernig þetta fer. Tilhugsunin að þurfa að hanga inni í tölvunni í sjö tíma og fimmtíu mínútur í viðbót er nánast óbærileg. Ég ætla að reyna að hanga sem mest úti á svölum. Nema ég geri mér upp flogakast og fái að fara heim. ritað af ~elísabetu~ klukkan 09:40. |
Þreyttar laxakökur Mig langaði að kanna áhrif þess að borða heila Betty Crocker súkkulaðiköku. Svo í gær bakaði ég köku með kremi og öllu tilheyrandi og át hana svo. Ég er búin að stroka út lýsingu mína á áhrifum þess í smáatriðum. En ég svaf ekkert í nótt og það heyrast enn skruðningar í maganum á mér 14 tímum síðar. Svo er mér illt. Þrátt fyrir að endanlegar niðurstöður þessarar könnunar séu ekki enn komnar lít ég svo á að Betty Crocker kökur séu eitur og innbyrðing einnar slíkrar sé skaðleg til langs tíma. Betty Crocker á þó heimasíðu sem getur stytt mér stundir og yljað mér að innan þegar kalt er í vinnunni. Þar eru uppskriftir að syndsamlega girnilegum kökum og öðrum sem eru bara kjánalegar. Betty er samt ekki vinur minn núna. Í gærkvöldi, um miðnættið, fórum við faðir minn í göngutúr um Elliðaárdalinn. Við töldum yfir hundrað laxa í ánni. Veðrið var gott eins og í dag. En núna fæ ég ekki að njóta þess því enn eru fimm tímar og tólf mínútur eftir af vinnudeginum. ritað af ~elísabetu~ klukkan 10:30. |
Afmæli Í gær náði Tómas Kolbeinn, litli bróðir minn, þeim áfanga að hafa lifað í átta ár. Hrafnkell Tumi, sem einnig er bróðir minn, á afmæli í næstu viku. Vegna þessara stóráfanga var haldin heljarinnar hátíð heima hjá mér. Ógrynni af drengjum hlupu um húsið, sumir í víkingabúningum með trésverð, aðrir klæddir eins og sjóræningjar en restin í sparifötunum. Niðri í kjallara í litla salnum á heimilinu var stór hoppukastali sem foreldrarnir höfðu leigt í tilefni dagsins. Þar fengu sykurfylltir afmælisgestir útrás og hoppuðu klukkutímum saman við ljúfa tóna Quarashi sem Tommi vildi hafa í botni. Nágrannastelpan hélt tónleika ásamt vinkonu sinni og öskraði ,,We will, we will rock you," meðan hún hafði úthald til. Hún hafði mikið úthald. Fljótlega eftir að ég kom heim úr vinnunni og í þessi ósköp fóru ungu afmælisgestirnir að tínast heim til sín og eldri afmælisgestir mættu á svæðið. Ekki mátti á milli sjá hvor aldurshópurinn skemmti sér betur í hoppukastalanum en hann er greinilega kjörið leiktæki fyrir karlmenn komna yfir fertugt. Mamma töfraði fram prýðis veitingar og með öllum þessum hoppum gátu menn friðað samviskuna yfir óhóflegu kökuáti. Um kvöldið var loftið tekið úr hoppukastalanum, borðstofuborðið minnkað, fötum skellt í töskur og í dag ætlar fjölskyldan að skella sér á Akranes á fótboltamót. Á meðan ætla ég að leika mér. ritað af ~elísabetu~ klukkan 09:38. |
Ferðalag Það er kominn mánudagur og ég sit í vinnunni. En ég fór í ferðalag um helgina. Gisti í tjaldi í ullarsokkum, hossaðist í bíl eftir þröngum sveitavegum, borðaði útilegufæði og andaði að mér hreinu lofti á Ströndum. Á leiðinni norður var komið við í Hólmavík. Mikið ógurlega fannst mér það óspennandi bær. Þó voru í gangi sérstakir ,,sæludagar" og höfðu bæjarbúar skreytt hús sín með blöðrum sem var reyndar svolítið krúttlegt en oft óttalega smekklaust. Hólmvíkingarnir óku um skakkar göturnar og heilsuðu upp á þá fáu nágranna sína sem þorðu að ganga um í rigningunni. Kaupfélagið á Hólmavík er sérkapítuli út af fyrir sig. Þar var allt á þreföldu Reykjavíkurverði. og þetta allt var frekar fátt. Það fékkst frekar fátt í þessu kaupfélagi. Bakkelsið var í opnum hólfum og var þar lítil stelpa sem sleikti glassúrið af snúðunum og setti þá svo aftur í hólfið. Veraldarvanir kaupfélagsgestir hrópuðu á milli sín setningar eins og: -,,Pestó, hvað er það?" -,,Það er eitthvað ógurlega smart, kaupum svoleiðis!" Við kíktum á Galdrasafnið á Ströndum. Þangað var fróðlegt að fara og kynna sér skemmtileg galdratákn og refsingar við göldrum. Sýningin sjálf var fróðleikur ritaður á spjöld og svo gekkstu um salina tvo og last á spjöldin. Í raun væri alveg eins hægt að safna þessu saman í lítið kver og selja safnaferðina á bókarformi. Aðgangseyririnn á sýninguna er 500 krónur. Djúpavík er fallegur staður. Þar gistum við eina nótt. Veðrið var gott og við sátum úti, grilluðum og kveiktum varðeld. Sjórinn spegilsléttur og loftið tært og fallegt. Þangað gæti ég hugsað mér að koma aftur. Við komum heim á sunnudagskvöldið. Ég fór í bað, borðaði góðan mat og setti ný rúmföt á rúmið mitt. Svo fékk ég martröð. Ég sem fæ aldrei martraðir. Mikið var það óþægilegt. ritað af ~elísabetu~ klukkan 09:52. |
Út í buskann Ég er komin með leið á bænum. Ég ætla upp í sveit um helgina, ganga á fjöll, gista ein í tjaldi og drekka vatn úr fjallalækjum. Ég ætla að borða fjallafæði og grilla lamb yfir eldi. Ég ætla að vera í lopapeysu og borða hundasúrur. Ég ætla að heilsa upp á skúlptúrista í Djúpuvík. Ég ætla að liggja í tjaldinu og hlusta á náttúruna áður en ég sofna. Á sunnudaginn ætla ég aftur heim. ritað af ~elísabetu~ klukkan 14:58. |
|