| ............................. |
|
lukkurefurinn
|
|
:: um lukkurefinn :: Nafn: Elísabet Hugrún Aldur: 20 Msn: elisabethugrun(at)hotmail.com :: yrðlingar :: Aldís Bjarni Dóra Björt Hafsteinn Halla Hildur Arna Hildur kona Hildur Kristín Saga Sigrún Hlín Bekkjarsíðan :: eldra :: júlí 2004 ágúst 2004 september 2004 október 2004 nóvember 2004 desember 2004 febrúar 2005 mars 2005 apríl 2005 maí 2005 júní 2005 júlí 2005 ágúst 2005 september 2005 október 2005 nóvember 2005 desember 2005 janúar 2006 febrúar 2006 mars 2006 apríl 2006 maí 2006 júní 2006 júlí 2006 ágúst 2006 september 2006 október 2006 nóvember 2006 desember 2006 janúar 2007 febrúar 2007 mars 2007 apríl 2007 maí 2007 júní 2007 júlí 2007 janúar 2008 :: heimsóknir :: Heimsóknir síðan 24. júlí 2006 |
|
Kjamms Ég át aleiguna mína í dag. Ég fór tvisvar á kaffihús og þá var aleigan farin. Leið mín lá fyrst í Smekkleysu þar sem ég hlýddi á nokkur lög með Huun Huur Tu og söngkonunni Ninu Nastasiu. Svo eftir ráp og rölt viltist ég inn á Prikið og át vonda samloku og djúpsoðnar franskar. En það er svo sem ásættanlegt að borða vonda samloku í góðum félagsskap. Um kvöldið lenti ég í grillveislu og á tónleikum, Lady and bird. Tónleikarnir voru yndislegir en liðu fljótt út í buskann. Þá lenti ég á Kaffibrennslunni. Eftir mikið vesen og vandræði fékk ég köku sem var vond. En það er allt í lagi að borða vonda köku í góðum félagsskap. Fólk var vel í glasi á þeim stað, afvelta miðaldra kvenmaður á sokkaleistunum stíflaði útgönguleiðina. En það var kominn nýr matseðill. ritað af ~elísabetu~ klukkan 23:18. |
Fitness Í gær héldum við Maggi kökuboð. Við bökuðum kryddbrauð og tveggja hæða súkkulaðitertu. Þetta borðuðum við með bestu lyst ásamt gesti kökuboðsins. Kryddbrauðið var reyndar svolítið blautt og kakan ekki alveg eins og stóð í uppskriftinni, við bættum nefnilega við ýmsum hlutum sem okkur fannst sniðugir í köku. Kakan kallaðist fitness-kakan vegna fitness-flaga sem fundust í henni. Fitness-flögurnar urðu fullseigar og kom skrýtinn svipur á menn þegar þeir fundu þær í sneiðinni sinni. Ég á myndir af þessum ósköpum en ég kann ekki að setja þær inn. Við gerðum of mikið krem svo okkur fannst tilvalið að nota afganginn af því til að leira úr og gróðursetja í plöntur. Kakan er núna stödd í vesturbænum hjá honum Þóri. Hann er orðinn mjög fit á því að borða hana. Svo á hann líka trampólín. Það er svo óskaplega gaman í sumarfríi. ritað af ~elísabetu~ klukkan 17:51. |
Vökustaurar Skólinn er búinn í bili. Í gær/dag var tjaldferð til að halda upp á það. Hún var ágæt, svona tjaldferð bara. Hitapokar voru nauðsynlegir til að koma í veg fyrir að menn frysu í hel. Þannig að ég fraus ekki í hel. Sumarfrí eru ágæt til að bæta upp svefn, vona ég. ritað af ~elísabetu~ klukkan 23:43. |
Föstudagrugl Ég sit með hitapoka á stól. Lesið notkunarreglurnar vandlega: Skiljið ekki púðann eftir í sambandi án gæslu. Notið ekki púðann samanbrotinn. Stingið ekki í hann með nálum eða prjónum. Púðann má ekki þurrhreinsa. Verið má taka af og þurrhreinsa. Ég hef brotið nokkur púðalög í dag. Ég var líka bara að lesa púðareglurnar áðan og vissi því ekki betur. Hann virkar samt bara betur eftir að ég þurrhreinsaði hann og stakk í hann prjóni. Að vísu fæ ég straum þegar ég kem við prjóninn. Ég veit ekki hversu mikinn straum því ég kann ekki eðlisfræði. Í dag þarf ég að læra eðlisfræði. Sem og alla daga fram að prófinu á þriðjudaginn. Eins og áður sagði sit ég með hitapoka (púða) á stól. Ég er klædd í asnalega gul, græn og bleik sumarföt því mig langar svo að fá gott veður. Það hefur haft lítil áhrif á veðrið hingað til en það þýðir ekki að gefast upp. Ég hlusta á uppáhaldstónlistina mína í dag, Ratatat. Það var samt ekki uppáhaldstónlistin mín í gær og verður það sennilega ekki á morgun. Svo glápi ég út í loftið því ég skil ekki kílówattsstundir þó ég viti hvað þær séu. Eins og ég skil ekki einn frænda minn, þó ég viti hver hann er. Hann er líka frá Indlandi, spilar á hörpu og skríður. Áðan fór ég á brennsluna. Ég át kjúklingasamloku. Hún var góð og sveitt. Svo át ég brennsluref. Honum mæli ég ekki með. Nú hafið þið, lesendur góðir, fengið óumbeðna innsýn í líf mitt í dag. Í gær fór ég að sofa klukkan átta. Það er svo gaman í prófum, ví! ritað af ~elísabetu~ klukkan 18:22. |
Prófafráhvörf Ég er haldin þeim ægilega sjúkdómi. Þegar ég tók jarðfræðiglósurnar og ætlaði að hefja lærdóminn sortnaði mér fyrir augun og ég misst allan mátt í líkamanum. Sem betur fer var rúmið nálægt svo ég hrundi á það. Þar lá ég lengi. Síðan hef ég reynt að plata mér samviskusamari nemendur í sukk og ógeð. Í sumum tilvikum tókst það. Svo sukk og ógeð verður það, ó vei. . ritað af ~elísabetu~ klukkan 17:49. |
Próf Elísabet: Ég ætla að fara að sofa og læra ekkert fyrir sögu. Pabbi: Elísabet, bara... stay cool. . ritað af ~elísabetu~ klukkan 21:02. |
|