.............................
lukkurefurinn
25.4.05
Sleikjó

Stúdentspróf í félagsfræði á morgun. Munnlegt próf í frönsku, líka á morgun. Spilatími á eftir. En rúmið mitt kallar á mig. Mig langar svo að leggjast og kúra og losna við þessar leiðindaharðsperrur sem Lukkurefurinn gaf mér eftir að hafa hoppað um allt eins og asni í gær þegar hann átti að vera að læra. Þess vegna fór ég ólærð í skólann í dag. Þreytt og ólærð með harðsperrur. Jess.

Svo kemst ég ekki inn á MySchool sem geymir sannleikann, félagsfræðiglósurnar.

Það er kominn Lukkurefur í annan fótinn á mér. Hann vill hoppa. Núna er hann líka kominn í hinn fótinn, hausinn og hendurnar. Það er ekki annað í stöðunni. Ég verð að fara að hoppa. Vona að hann róist fljótt því annars verður ekki gaman á morgun.

ritað af ~elísabetu~ klukkan 15:45. |


19.4.05
Heilsuátök

Pabbi át ost um daginn. Honum fannst hann ofsagóður og át hann allan. Svo kíkti hann á næringarinnihaldslýsinguna á umbúðunum. Þá sá hann að hann hafði innbyrt 1000 kcal með þessum osti. Þá varð pabbi grænn í framan. Ho, ho.

Alltaf gaman að fólki í heilsuátaki. Heilsuátök hjá mér virka ekki. Ég get ekki einu sinni borðað ávexti eða grænmeti. Mánaðarskammtur minn af ávöxtum er tæplega eitt stykki. Ekki skil ég grænmetisætur því Lukkurefurinn étur bara kjöt.

Í dag mættum við Hildur gömlum manni á Lækjargötu. Hann var ósáttur við að við leiddumst. Ég veit ekki hvað hann var að hugsa en hann ræskti sig ógurlega og sagði eitthvað í þá átt að það væri óþarfi að leiðast á almannafæri. Það var samt enginn óþarfi, því ég var of upptekin af öðru en að halda jafnvægi og ákveða í hvaða átt ég ætti að fara svo Hildur neyddist til.

Ég hringdi á skrifstofuna í MR áðan. Þar var elskuleg kona sem hefur í fórum sínum allar eigur sjóræningjans sem hann týndi á grímuballinu í síðustu viku. Þegar maður er sjóræningi hefur maður um annað að hugsa en að passa upp á dótið sitt.

ritað af ~elísabetu~ klukkan 15:47. |


16.4.05
Tilgangslaus hringiða skemmtilegra og leiðinlegra hluta

Það er margt skemmtilegt. Á miðvikudaginn var grímuball sem var skemmtilegt. Ég var sjóræningi með sverð og hatt með fjöður. Síðar um kvöldið fékk ég augnlepp sem tók jafnvægisskynið betur úr sambandi á dúandi gólfi skemmtistaðarins Pravda. Grímubúningar eru skemmtileg fyrirbæri. Vilborg tjáði sig um grímuballið. Hildur tjáði sig líka um grímuballið. Svo ég ætla ekki að gera það nánar.

Annars er ekki skemmtilegt að vakna þegar klukkan er að verða sex og fatta að maður á að vera kominn heim. Sérstaklega ekki þegar maður er lyklalaus. Og mamma manns hringi í mann og haldi að maður hafi lent í slysi því maður óvart gleymdi að segja hvert maður ætlaði. (Nú hef ég ofnotað orðið maður). Það henti sumsé í morgun, þ.e. ekki að ég ofnotaði orðið maður heldur hitt. En fram að því var mjög skemmtilegt. Það var gaman í gær.

Það bíða mín próf á mánudaginn. Vond próf og ljót próf. Það besta í stöðunni er sennilega að fara með föður sínum á myndlistasýningar og á kaffihús.

ritað af ~elísabetu~ klukkan 15:15. |


10.4.05
Íslenskir refir


Ég er óttalegt kjánaprik. Bjarni enskukennari ákvað að það væri sniðugt að láta mig halda fyrirlestur ein. Efnið mátti vera hvað sem er þannig að ég ákvað að vera ekkert að stressa mig á því að finna efni fyrir tímann sem hann ætlaði fá efnið til að athuga hvort það væri ósiðlegt. En þegar Bjarni spyr mig hvert efnið mitt er vissi ég ekki hvað ég ætti að segja. Ég lít í kringum mig og segi: uuhh.... uhhh.... Íslenskir refir!

Svo nú sit ég uppi með hið skemmtilega efni íslenskir refir, af öllu í heiminum. The Icelandic Fox. Það fyrsta sem manni dettur í hug er víst ekki alltaf það sniðugasta.
Refir eru samt ágætir. Sérstaklega einn óþekkur.

Í dag eyddi ég peningum í vitleysu. Núna á ég pakka af fersku pasta með spínatfyllingu, kassa af jarðarberjum og annan af bláberjum. Berin greip ég í flýti í Hagkaup þegar skuggalegur Rússi ákvað að muldra eitthvað á rússnesku í eyrað á mér og strjúka á mér hárið. Pastað keypti ég í Nóatúni eftir langt ráf í leit að einhverju að borða. Svo settist ég út í bíl með pastað í farþegasætinu og fattaði að mig langaði ekkert í pasta. Þannig að ég seildist eftir símanum. Og pantaði mér stóra og rándýra pizzu. Einhverra hluta vegna komst hún öll fyrir í maganum á mér. Mér líður því eins og ég sé ólétt. Gellunni í Pulp Fiction þætti ég sexí núna.

Ég heyri foreldrana renna í hlað. Reyndar fyrir svolitlu. Þá kom mamma inn og spurði afhverju ég væri ekki búin að færa bílinn. Ég sagði úps. Hún fór út og færði bílinn. Svo renndu þau í hlað aftur. Þannig að þau eru komin.

ritað af ~elísabetu~ klukkan 20:05. |


4.4.05
Lukkurefurinn leikur sér

Lukkurefurinn: Þú varst vondur við mig í dag, dagur.
Dagur: Nei, nei, ég var ekkert vondur við þig. Það voru bara allir hinir sem voru vondir við þig.
Lukkurefurinn: Það var samt þér að kenna.
Dagur: Nei, nei.
Dagur hikar og segir svo: Eða jú, það var sennilega allt mér að kenna.
Lukkurefurinn: Svei, þér dagur. Ég hefði ekki átt að vakna í morgun.
Dagur: Nei, ekki láta svona, kæri Lukkurefur.
Lukkurefurinn: Það er ekkert vit í því að vakna þegar þú býður manni upp á slíkar hörmungar.
Dagur: Þú veist nú ekkert um hörmungar.
Lukkurefurinn: Víst.
Hann segir það milli samanbitinna tannanna og urrar.
Dagur: Ég bauð þér nú upp á lekkera sólarupprás.
Lukkurefurinn: Mér er alveg sama. Ég sá hana ekki.
Dagur: Svo var nú engin rigning.
Lukkurefurinn: Það var samt kalt.
Dagur: Iss, ertu ekki með feld.
Lukkurefurinn: Þegiðu.
Dagur: Æ, vertu ekki með þessa fýlu. Þú fékkst nú að fara í myndatöku með græn og loðin kanínueyru.
Lukkurefurinn: Reyndar. En ég hata þig samt.
Dagur: Er það nú ekki full mikið sagt. Ég er alveg kominn í mínus hérna.
Lukkurefurinn: Gott á þig. Þú ert ljótur.
Dagur: Sko, það er ekki satt. Hitt sem þú sagðir getur verið satt en þetta er ekki satt.
Lukkurefurinn: Ókey. Það er rétt. Þú ert ekkert ljótur. Þú ert bara ömurlegur.
Dagur: Heldurðu að mér líði eitthvað vel að heyra þetta?
Lukkurefurinn: Hahh... mér er alveg sama.
Lukkurefurinn segir það með kvikindislegum svip og það rétt glittir í glirnurnar í samankipruðum augunum.
Dagur: Hey, ég er nú orðinn hálfhræddur hérna.
Dagur: Hjálp, ég er lentur í ref!
Lukkurefurinn urrar.
Dagur: Hjálp... einhver... þessi refur er alveg brjálaður.
Lukkurefurinn hleypur að degi og bítur hann í hálsinn. Stór biti úr hálsinum rifnar úr. Lukkurefurinn klórar síðan úr honum augun.
Dagur: Hjálp... hjálp... það er verið að éta mig.
Lukkurefurinn: Iss... ég ét ekki svona viðbjóð eins og þig.
Dagur: Hvað ertu þá að gera.... hjálp, hjálp!
Lukkurefurinn finnur beitta kló og sker niður eftir kviðnum á degi.
Dagur: Hey - þetta er hætt að vera fyndið núna.... hættu.
Lukkurefurinn er hættur að nenna að hlusta á hann og dregur úr honum lungun. Hann ætlar að búa til úr þeim hatt til að vera með á grímuballinu. Dagurinn var hvort sem er ónýtur frá upphafi.


Já, á meðan ég man. Kjósið rétt - kjósið Elísabetu, Hildi og Sigrúnu í spilafélagið.

ritað af ~elísabetu~ klukkan 20:41. |